Psalms 12

1Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. 2Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum. 3Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir. 4Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð, 5þeim er segja: ,,Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?`` 6,,Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp,`` segir Drottinn. ,,Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana.`` 7Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull. 8Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur. [ (Psalms 12:9) Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna. ]
Copyright information for Icelandic